Deildarfulltrúi
Deildarfulltrúi AA-deildar er tengiliður deildarinnar við AA-samtökin.
"Hann er rödd samvisku deildarinnar, hvort sem er á fundum hverfis- og/eða svæðisnefnda. Æskilegt er að hann sé fulltrúi deildar á Landsþjónusturáðstefnunni."
Hann kynnir sér 12 erfðavenjur og 12 hugtök AA-samtakanna, t.d. með lestri bóka og bæklinga sem snúa að AA-deildinni, erfðavenjunum og hugtökunum.
Hann flytur heimadeild sinni upplýsingar um það sem er að gerast í starfi AAsamtakanna, sem byggir á Einingu, Bata og Þjónustu.
Hann tekur við pósti frá AA-samtökunum og kynnir fyrir deildinni. Hann kynnir deildinni AA-bækur, AA-hljóðbækur og AA-bæklinga sem útgáfunefnd AA-samtakanna gefur út og fást á skrifstofu AA-samtakanna.
Með því að velja hæfasta einstaklinginn sem deildarfulltrúa getur viðkomandi deild lagt sitt af mörkum til að tryggja eigin framtíð og framtíð AA-samtakanna.
Æskilegt er að kjörgengir sem deildarfulltrúar séu þeir AA-félagar sem hafa a.m.k. tveggja ára samfellda edrúmennsku og hafa verið virkir í starfi fyrir deildina og/eða AA-samtökin.
Æskilegt er að deildarfulltrúi gegni ekki starfinu lengur en í tvö ár samfellt.
Úr Þjónustuhandbók AA, kafla 3.2.2.2